Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 323
Samþykkt
Fyrirspurn
Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að afturkalla gjaldskyldu á eftirfarandi götum, þar til Háskóli Íslands hefur gjaldtöku á nærlægum svæðum: • Aragata • Oddagata • Sæmundargata
Svar

Samþykkt með vísan til c liðar 1. gr. í viðauka 1.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs í samræmi við 86. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Fulltrúi Vinstri grænna situr hjá við afgreiðslu málsins.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Lögð er fram tillaga um að afturkalla gjaldskyldu á eftirfarandi götum, þar til Háskóli Íslands hefur gjaldtöku á nærlægum svæðum: • Aragata • Oddagata • Sæmundargata. Flokkur fólksins fagnar þessari afturköllun og vill láta ganga lengra og afturkalla gjaldskyldu í kringum alla skóla og sjúkrastofnanir. Gengið hefur verið of langt í að seilast í vasa þeirra sem verða og vilja nota bíl ekki síst meðan ljóst þykir að almenningssamgöngur eru langt því frá að vera viðunandi.