Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 323
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á minnisblaði um umferðaröryggi og aðgengi í Vogabyggð. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins minna á fyrri tillögur sínar og ábendingar í þágu aukins umferðaröryggis í Vogabyggð. Auka þarf umferðaröryggi á fjölförnum gatnamótum í hverfinu með snjallstýringu gangbrautarljósa. Um er að ræða gatnamót Sæbrautar-Kleppsmýrarvegar-Skeiðarvogs, Sæbrautar-Súðarvogs og Kleppsmýrarvegar-Dugguvogs-Skútuvogs. Þá þarf að ráðast í úrbætur á gatnamótum Knarrarvogs og Súðarvogs í þágu óvarinna vegfarenda. Þarna er slysahætta vegna mikillar umferðar um gatnamótin af ökutækjum, sem eru á leið til eða frá bílastæðum fjölsóttra atvinnufyrirtækja við Knarrarvog. Setja þarf upp skýrar varúðarmerkingar þar sem Knarrarvogur þverar fjölfarinn hjólastíg Kelduleiðar, t.d. með merki um hjóla- og göngustíg og með því að lita hjólareinina á þessum stað. Þá þarf að taka upp stöðvunarskyldu á gatnamótunum gagnvart umferð frá Knarrarvogi í stað biðskyldu. Enn og aftur skal minnt á fyrri tillögur Sjálfstæðisflokksins um að leitast verði við að leggja sérmerktar hjólareinar milli götu og gangstéttar í Vogabyggð þar sem aðstæður leyfa. Við hönnun og skipulag Vogabyggðar fórst fyrir að gera ráð fyrir slíkum hjólareinum, sem hefði verið hægðarleikar því gangstéttar í hverfinu eru flestar breiðar og rúmgóðar. Æskilegt er að slíkar hjólareinar verði lagðar við þær götur, sem enn eru ófrágengnar í hverfinu. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Flokkur fólksins lagði fram 2. október s.l. tillögu um að setja göngubrú yfir Sæbraut sem forgangsverkefni í ljósi hörmulegs banaslyss sem varð við Sæbraut fyrir skemmstu. Sú framkvæmd er að hefjast. Koma verður strax upp snjallstýrðum gangbrautarljósum sem lesa umferðarflæði, aðstæður og hreyfingar vegfarenda. Aðgerðir til lengri tíma snúa að Sæbraut í stokk því vitað var að að göngubrú yrði yfir Sæbraut milli Tranavogs og Snekkjuvogs, yrði hæðarlega erfið. Stokkur myndi tengja saman Vogabyggðina við Vogana vestan Sæbrautar, og gera göngubrúna óþarfa. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur heldur úti akstri skólabíls milli Vogabyggðar og Vogaskóla á virkum dögum, sem þó fullnægir ekki ferðaþörf allra nemanda í Vogabyggð, s.s. í tengslum við frístund. Sæbrautarstokkur mun bæta úr vandamálum en fram að þeim tíma ætti að nota snjallljósakerfi til að stýra umferðinni. Vogabyggð er orðin fjölmenn byggð og börnin í hverfinu þurfa daglega að fara yfir Sæbrautina til að sækja skóla, frístundir og fleira. Íbúar hafa lengi verið að kalla eftir úrbótum. Þetta er hættulegar aðstæður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Íbúar Vogabyggðar hafa þurft að takast á við ótta um öryggi barna sinna allt of lengi og gangandi vegfarendur eru í stöðugri hættu. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: Læra þarf af umferðarvandamálum Vogabyggðar og bæta sig við uppbyggingu af þessu tagi þar sem stórar íbúðabyggingaframkvæmdir eru gerðar. Tryggja að gengið sé frá gangstéttum, hjóla- og gönguleiðum sem geti þjónustað íbúa á meðan á framkvæmdaraski stendur. Þetta er nauðsynlegt til þess að vetrarþjónusta geti farið fram og íbúar sem ekki ferðast á bíl komist leiðar sinnar innan hverfis, og inn og út úr hverfinu. Gangstétt norðan við Kleppsmýrarveg hefði tengt Gelgjutanga og hefði verið hægt að hefja vetrarþjónustu á honum, í 3 ár hefur Bátavogur og Gelgjutangi nokkru skemur verið nánast samfleytt verið ótengdir fyrir óvarða vegfarendur sem nota götuna, og bílastæði við Bónus til þess að komast leiðar sinnar. Réttast hefði verið að fara strax í að byggja þar gangstétt, sem forgangsmál fyrir þá þéttu byggð sem vitað var að myndi byggjast upp við og neðan við Kleppsmýrarveg sem á erindi á Skútuvog eða yfir Sæbraut. Þá hefði verið hægt að hefja vetrarþjónustu um leið fyrir þann hluta byggðarinnar sem enn er illa tengdur fyrir gangandi, hjólandi og fólk með börn og barnavagna. Beygjuljós/rautt ljós til vesturs á Kleppsmýrarveg úr norðri og beygjuakrein á Skútuvogi ætti að koma til skoðunar til þess að létta á gatnamótum Skútuvogs og Kleppsmýrarvegar.