Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 367
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags. 15. janúar 2026 þar sem lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki tillögu að stækkun á gjaldsvæðum bílastæða Reykjavíkurborgar á gjaldsvæði 2 að Skólavörðuholti, bílaplan við hús Tækniskólans og Hallgrímskirkju. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi breytingartillögu: Lagt er til að fyrirliggjandi tillaga um gjaldskyldu bifreiðastæða við hús Tækniskólans og Hallgrímskirkju verði kynnt fyrir skólaráði og Nemendasambandi skólans, sem og sóknarnefnd kirkjunnar. Verði þessum aðilum gefinn kostur á að veita formlega umsögn um málið áður en tillagan verður afgreidd.
Svar

Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins greiða atkvæði gegn frávísun breytingartillögunnar.
Upphafleg tillaga samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.