Fyrirspurn
Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki eftirfarandi tillögu að stækkun á gjaldsvæðum bílastæða Reykjavíkurborgar.
Gjaldsvæði 2: Skólavörðuholt, bílaplan við hús Tækniskólans og Hallgrímskirkju.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi málsmeðferðartillögu:
Lagt er til að fyrirliggjandi tillaga um gjaldskyldu bifreiðastæða við hús Tækniskólans og Hallgrímskirkju verði kynnt fyrir skólaráði og Nemendasambandi skólans, sem og sóknarnefnd kirkjunnar. Verði þessum aðilum gefinn kostur á að veita formlega umsögn um málið áður en tillagan verður afgreidd.