Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 vikum síðan.
Bæjarstjórn nr. 69
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 56. fundi skipulagsnefndar frá 28. janúar sl. liður 6. Grænamörk, Austurvegur; Deiliskipulag Grænumarkarhverfis.
Lögð er fram skipulagslýsing sem tekur til breytinga á skilmálum fyrir íbúðarbyggðina ÍB17 á Selfossi. Gerð verður breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036 og unnið nýtt deiliskipulag. Um er að ræða íbúðarbyggð sem afmarkast af Hörðuvöllum, Árvegi, Þórsmörk, Heiðmörk og Austurvegi. Heimilaðar verða fleiri byggingar og íbúðir ásamt því að umferð akandi og gangandi verður yfirfarin.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir framlagða skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista,

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillögu bæjarstjóra um að samþykkja skipulagslýsingu til kynningar og umsagnar í samræmi við 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.