Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 72
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 59. fundi skipulagsnefndar frá 25. mars sl. liður 6. Grænamörk, Austurvegur - Aðalskipulagsbreyting.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytingar á skilmálum fyrir íbúðarbyggð ÍB17 á Selfossi. Um er að ræða íbúðarbyggð sem afmarkast af Hörðuvöllum, Árvegi, Þórsmörk, Heiðmörk og Austurvegi. Gerð er breyting á skilmálum fyrir íbúðarbyggðina ÍB17. Heimilað er að fjölga íbúðum og þétta byggðina. Eftir breytingu verði eftirfarandi skilmálar í gildi er varða uppbyggingu innan svæðisins: Heimilt er að vera með byggingar á 1-4 hæðum og sambland af einbýlishúsum og fjölbýlishúsum. Á jarðhæð er heimilt að vera með íbúðir, verslun- og þjónustu og samfélagsþjónustu. Einkum starfsemi sem þjónar íbúum í nærumhverfi. Svæðið er ætlað fyrir 50 ára og eldri. Á lóðum við Heiðmörk og Þórsmörk er til framtíðar litið gert ráð fyrir íbúðum fyrir 50 ára og eldri. Ef byggingar eru 4 hæðir þá skal efsta hæð vera inndregin. Hliðar húsa sem eru lengri en 15 m skal brjóta upp með inn- eða útskoti, litavali eða á annan hátt. Heimilt er að vera með bílakjallara. Við útfærslu svæðis í deiliskipulagi skal miða við að auka sjálfbærni, bæta gæði umhverfisins með gróðri, leitast við að skapa skjólgóð svæði þar sem sólar nýtur og að aðkoma og aðgengi sé greitt. Ásamt því að skoða aðkomu, umferðarflæði fyrir alla og bílastæði.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt til kynningar á grundvelli 30.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista og Arnar Freyr Ólafsson, B-lista.

Brynhildur Jónsdóttir, varaforseti, tekur við stjórn fundarins kl. 17:45.

Til máls tekur Kjartan Björnsson, D-lista.

Kjartan Björnsson, forseti, tekur aftur við stjórn fundarins kl. 17:48

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum kynningu á aðaskipulagsbreytingu sem tekur til breytingar á skilmálum fyrir íbúðarbyggð ÍB17 á Selfossi og felur skipulagsfulltrúa að fara með málið í samræmi við 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.