Tillaga frá 56. fundi skipulagsnefndar frá 28. janúar sl. liður 3. Fossnes og Mýrar - Óveruleg breyting á aðalskipulagi - Breytt landnotkun. Efla f.h. Sveitarfélagsins Árborgar leggur fram tillögu í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að óverulegri breytingu á gildandi aðalskipulagi Árborgar 2020-2036. Breytingin tekur að meginhluta til stækkunar á svæði VÞ4, og samsvarandi minnkunar á svæðinu OP1. Breytingin er gerð til að auka landnýtingu fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi.
Aðalskipulagsbreytingin fellur undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Þó verslunar- og þjónustusvæði sé stækkað og opið svæði minnkað samsvarandi þá er breytingin metin hafa óveruleg áhrif á umhverfisþætti. Til að tryggja áfram aðlaðandi ásýnd við aðkomu að Selfossi úr vestri þá eru settir skilmálar um að sérstaklega skuli gætt að snyrtilegri ásýnd. Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja framlagða breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Mælist nefndin til þess að áformin verði sérstaklega kynnt landeigendum aðliggjandi lands og sveitarfélaginu Ölfus. Komi engar athugasemdir fram við kynningu málsins verði niðurstaða sveitarfélagsins auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar.
Svar
Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum framlagða breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins, Fossness og Mýrar, á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.