Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 66
Annað
Fyrirspurn
Tillag frá 53. fundi skipulagslaga frá 26. nóvember sl. liður 6. Miðsvæði M5 og M6; Tillaga óverulegrar breytingar á aðalskipulagi.
Lögð er fram tillaga óverulegrar breytingar á aðalskipulagi sem tekur til miðsvæði M5 og M6. Í breytingunni felst nánari skilgreining á heimildum sem taka til reksturs á miðsvæðum. Núverandi heimildir gera ráð fyrir eftirfarandi skilmálum: "Innan reits eru þrjár deiliskipulagsáætlanir í gildi. Gert er ráð fyrir lágreistri íbúðarbyggð á 1-3 hæðum. Heimilt er að vera með verslun- og þjónustu á jarðhæð." Eftir breytingu verði skilmálarnir eftirfarandi: Innan reits eru þrjár deiliskipulagsáætlanir í gildi. Gert er ráð fyrir lágreistri íbúðarbyggð á 1-3 hæðum. Heimild er fyrir verslunar- og þjónustutengdum rekstri innan svæðisins með eftirfarandi fyrirvörum: - Gera skal grein fyrir heimildum sem taka til rekstur með ítarlegum hætti innan deiliskipulags og/eða með grenndarkynningu innan hverfisins. - Gera skal grein fyrir fullnægjandi fjölda bílastæða. - Starfsemi innan hverfisins taki mið af aðliggjandi byggð.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar.
Svar

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins og að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.