Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 62
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 50. fundi skipulagsnefndar frá 10. september sl. liður 2. Deiliskipulag Jórvík 1, áfangi 2 og Björkurstykki 3.
Lögð er fram eftir auglýsingu tillaga að deiliskipulagi fyrir Jórvík 1. 2. áfanga (28,9 ha.) og Björkurstykki III (17,5 ha.). Tillagan var auglýst frá 22. maí - 3. júlí 2025. Umsagnir bárust frá Brunavörnum Árnessýslu, Náttúruverndarstofnun, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Rarik, Selfossveitum og Vegagerðinni. Ábendingar eru settar fram í umsögn Náttúruverndarstofnunar sem snúa meðal annars að því að greining á fuglalífi og áhrifum framkvæmdarinnar á búsvæði fugla þyrfti að fara fram og að skýr stefna um verndun og endurheimt á líffræðilegum fjölbreytileika sé sett fram ásamt því að huga þurfi að tímabundnum áhrifum framkvæmdastigs og mótvægisaðgerðum. Svæði 2. áfanga Jórvíkur liggur til suðurs í framhaldi af núverandi skipulagi í Jórvík I, og Björkurstykki III liggur milli nýrrar byggðar í Jórvík 1, og Björkurstykkis. Samanlagt er skipulagssvæðið um 46,4 ha. Með deiliskipulaginu er verið að skapa svæði til frekari uppbyggingar blandaðrar íbúðabyggðar og þjónustu í Árborg. Megin áhersla deiliskipulagsins er að afmarka lóðir og skilgreina byggingarreiti fyrir íbúðarbyggð ásamt því að setja skilmála fyrir uppbyggingu innan fyrirhugaðs íbúðarsvæðis í samræmi við lög og reglur. Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir hæfilega þéttri byggð og hagkvæmri nýtingu lands. Íbúðarbyggðin er í meginatriðum lágreist með einnar hæðar sérbýlishúsum, tveggja hæða tví- og fjórbýlishúsum og allt að 6 hæða fjölbýlishúsum ásamt þjónustulóðum. Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir allt að 1200 íbúðum. Gera má ráð fyrir að uppbygging svæðis muni taka 10-15 ár. Gert er ráð fyrir að áhersla verði á uppbyggingu í Björkurstykki III, í fyrri áfanga og Jórvík 1. áfanga 2, í þeim síðari. Aðkoma fyrir akandi umferð verður frá Suðurhólum, Hólastekk og að Jórvík 1. 2 áfanga í gegnum núverandi byggð í Jórvík I. Umagnir bárust við tillöguna á auglýsingatíma hennar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum og samantekt viðbragða og andsvara.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna og framlagðrar samantektar umsagna og viðbragða. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Til máls taka Ari B. Thorarensen, D-lista,

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 10 atkvæðum, framlagt deiliskipulag fyrir Jórvík 1, 2. áfanga (28,9 ha.) og Björkurstykki III (17,5 ha) eftir auglýsingu, samkvæmt bókun skipulagsnefndar. Bæjarstjórn samþykkir að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.