Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Bæjarstjórn nr. 68
Annað
Fyrirspurn
Húsnæðisáætlun fyrir Sveitarfélagið Árborg 2026 tekur áfram mið af tveimur megin þáttum sem hafa áhrif á áætlunina. Annar er sá þáttur er snýr að hraðri og mikilli uppbyggingu síðustu ár, þar sem fjölgun íbúa er um 4% að jafnaði. Tekið er tillit til þess í áætlun fyrir árið 2026 að margar íbúðir eru í byggingu. Á undanförnum árum hefur aðeins dregið úr byggingarhraða, vegna utanaðkomandi áhrifa, svo sem vaxtastigs og hækkunar á verði aðfanga. Hinn þátturinn sem hefur áhrif á áætlunina er eftirspurn eftir orku. Sveitarfélagið hefur verið í góðu samstarfi við framkvæmdaaðila um markmið uppbyggingar og gert áætlanir í takti við orkuöflun. Staðan er góð fyrir næstu árin en mikilvægt er að horfa til frekari orkuöflunar ásamt uppbyggingu annarra innviða til að mæta auknum íbúafjölda. Í ljósi framangreinds gerir háspá ráð fyrir 6% íbúafjölgun, miðspá 4% og lágspá 2% fyrir árið 2026. Reikna má með að raunin verði um miðspá miðað við ofangreindar forsendur. Fjöldi íbúa í Árborg er nú rúmlega 12.900 manns.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista og Ellý Tómasdóttir, B-lista.

Brynhildur Jónsdóttir, varaforseti, D-lista, tekur við stjórn fundarins kl. 17:34, á meðan Kjartan Björnsson, forseti, yfirgefur fundinn.
Kjartan Björnsson, forseti, tekur aftur við stjórn fundarins kl. 17:39.

Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja Húsnæðisáætlun Árborgar 2026.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 10 atkvæðum. Einn greiddi atkvæði á móti, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista.