Stóra-Hraun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 59
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 45. fundi skipulagsnefndar frá 28. maí sl. liður 1. Stóra-Hraun L215875 - Deiliskipulag.
Deiliskipulagstillaga tekin til afgreiðslu í kjölfar auglýsingar skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010: Deiliskipulagið tekur til svæðis undir öryggisfangelsi á Stóra Hrauni L215875, nærri Eyrarbakka í Árborg, skv. meðfylgjandi uppdrætti og greinargerð. Stóra-Hraun er landspilda um 250 ha. að stærð, sem liggur í og við gatnamót að Eyrarbakka og Stokkseyri, og upp með Eyrarbakkavegi, og er áætlað að nýta hluta landsins undir nýtt öryggisfangelsi. Bygging í fyrsta áfanga mun skapa rými fyrir vistun allt að 100 fanga, með stækkunarmöguleikum upp í 128 fanga. Tillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2020-2036. Deiliskipulagstillagan var auglýst í Dagskránni og Lögbirtingarblaði, auk þess sem tillagan var aðgengileg á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar frá 13. mars, með athugasemdafresti til og með 30. apríl 2025. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Brunavörnum Árnessýslu, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Minjastofnun, Náttúrufræðistofnun, Náttúruverndarstofnun, auk athugasemda frá landeigenda Efra-Sels. Helstu atriði umsagna snéru að fráveitumálum, vatnasvæðum, votlendismálum, fuglavernd, auk nokkurra athugasemda frá landeiganda Efra-Sels.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir umsagnir og athugasemdir, og hefur sett saman í samantektarskjali viðbrögð við umsögnum og athugasemdum, sem mun fylgja með öðrum gögnum tillögunnar og verða send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin telur að með viðbrögðum í samantektarskjali sé komið til móts við þær umsagnir og athugasemdir sem bárust, og hefur þeim áherslupunktum sem þyngst vega, verið bætt inn í greinargerð tillögunnar, auk þess sem skráðum fornminjum er bætt inn á skipulagsuppdrátt.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagið.
Svar

Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.

Farið hefur verið yfir umsagnir og athugasemdir, og sett saman í samantektarskjali viðbrögð við umsögnum og athugasemdum, sem mun fylgja með öðrum gögnum tillögunnar og verða send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.
Bæjarstjórn telur að með viðbrögðum í samantektarskjali sé komið til móts við þær umsagnir og athugasemdir sem bárust, og hefur þeim áherslupunktum sem þyngst vega, verið bætt inn í greinargerð tillögunnar, auk þess sem skráðum fornminjum er bætt inn á skipulagsuppdrátt.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna til afgreiðslu.