Fyrirspurn
Tillaga frá 41. fundi skipulagsnefndar, frá 26. febrúar sl. liður 7. Miðbær Selfoss - Deiliskipulagsbreyting 2024.
Mál áður á dagsskrá skipulagsnefndar 15.1.2025 þar sem samþykkt var að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en var frestað á fundi bæjarstjórnar þann 5.2.2025. Uppfærð tillaga og greinargerð vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir miðbæ Selfoss er hér lögð fram á ný til skipulagsnefndar.
Breytingar á uppdrætti og greinargerð útgáfu 04 eru eftirfarandi (7.1.2025):
1. Nafni og skilgreiningu á göngugötunni Garðatröð er breytt í torgarsvæðið Menningarstræti.
2. Lóðarmörkum milli Eyravegar 1 og Eyravegar 3-5 er breytt og við það færast fermetrar í kjallara á milli lóðanna.
3. Lóðirnar Miðstræti 1-27 (áður 1-25) og 29-45 (áður 25-37) eru stækkaðar lítillega við það að "tota" út úr Menningarstræti er færð undir lóðirnar.
4. Lóðin Kirkjuvegur 13 er sameinuð lóð sem áður var Garðatröð 5-11 nú Menningarstræti 7-25. Heimilt verður að rífa núverandi hús á Kirkjuvegi 13 og nýr byggingarreitur er sýndur þar. Kvöð er um gönguleið í gegnum lóðina en mörk göngustígs eru nú óbundin.
5. Lóðin Menningarstræti 1-5, áður 1-3 er stækkuð lítillega til vesturs.
6. Gerð er krafa um a.m.k. 14 bílastæði í kjallara Miðstrætis 2-8, en á móti minnkar krafa um stæði í Miðstræti 1-25 í a.m.k. 46 bílastæði.
7. Gerð er krafa um a.m.k. 30 bílastæði í kjallara Miðstrætis 10-20. Til að uppfylla þá kröfu er hámarksbyggingarmagn í kjallara aukið úr 1000m² í 1500 m².
8. Gerð er leiðrétting á töflum í kafla 2.2 á bls. 14 í greinargerð. Gerðar er tilfærslur á heimiluðu hámarksbyggingarmagni á milli nokkurra lóða á vestursvæði, en heildarbyggingarmagn er óbreytt bæði ofanjarðar og í kjöllurum að undanskildri lóðinni Miðstræti 10-20 sbr. lið 7 hér að framan. Á austursvæði er heimilað að byggja þriðju hæðina ofan á Austurveg 8 og 10, sjá nýja sneiðingu C-C á uppdrætti, og eykst því byggingarmagn í töflum í kafla 2.2. um þá viðbótarhæð.
9. Gerð er kvöð um akstur bíla í gegnum lóðirnar Austurvegur 4 og 4a. Einnig í gegnum lóðirnar Austurvegur 2 og 2a, niður í bílakjallara og vöruaðkomu undir Miðstræti 2-8 og að lóð dreifistöðvar (D). Bílastæði á ofangreindum lóðum verða áfram eingöngu fyrir þær lóðir og nær akstursheimildin eingöngu til bílastæða í kjallara Miðstrætis 2-8 sem tilheyra íbúum þeirrar lóðar. Sjá kafla 2.3.1.
10. Lóð dreifistöðvar (D) Austurvegur 2c er stækkuð og verður 73m². Til að tryggja óheft aðgengi til athafna í og við lóðina, er sett kvöð um lagnaleið, kvöð um gönguleið og kvöð um aðkomu þjónustubifreiða HS veitna að lóðinni. Sjá kafla 2.3.1.
11. Gerðar eru textabreyting í köflum 2.4, 2.6.2, 2.6.4, 2.7, 3.6, 3.13, 3.15 og 4.2.
12. Bætt er við setningu í greinargerð aftast í kafla 3.2 Byggingarreitir: "Ef byggingarheimild ofanjarðar er ekki nýtt er heimilt að bæta henni við í kjallara sömu lóðar svo fremi að stærð byggingarreits heimili það."
13. Texta um torg er breytt og hluti er felldur út aftast í kafla 4.9.
14. Heimild fyrir turni á Brúartorgi er felld út og kafli 3.10 Kennileiti - útsýnisturn í greinargerð fellur út.
15. Bætt er við kvöðum um lagnaleið í gegnum lóðina Miðstræti 2-8. Einnig í gegnum lóðirnar Austurvegur 6 og 8b. Sjá kafla 2.7.
16. Bætt er við kvöð um akstur í gegnum lóðirnar Austurvegur 6, 8 og 10. Sjá kafla 2.3.1. 17. "Torgarsvæði" í vistgötum er aukið með frekari möguleikum fyrir innréttingar og gróður í göturýminu, en við það er bílastæðum fækkað lítillega meðfram vistgötum.
Breyting nú eftir fyrri afgreiðslu skipulagsnefndar er eftirfarandi:
Á uppdrætti: Við Miðstræti 10-20 stendur núna: "a.m.k. 32 bílastæði í kjallara" og við Miðstræti 1-27: "a.m.k. 14 bílastæði í kjallara".
Breytingar á töflum á bls. 15. Hætt er við að fjölga fermetrum í kjöllurum. Í töflum er sú breyting frá auglýstri tillögu að fermetrum er fækkað í Miðstræti 1-21 og 29-45 en aukið um 200fm í Miðstræti 10-20. Sú 30 bílastæða aukning í kjöllurum vestursvæðis sem var í auglýstri tillögu er því felld út.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingartillögu í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. sömu laga, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna skv. 43. gr. skipulagslaga og til auglýsingar í samræmi við 41. gr sömu laga.