Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 41. fundi skipulagsnefndar frá 26. febrúar sl. liður 8. Deiliskipulagstillaga Hellisland 36.
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi fyrir íbúðalóðina Hellisland 36 á Selfossi. Gert er ráð fyrir að skipta lóðinni upp í þrjár lóðir. Á lóðinni Hellislandi 36 er heimilað að byggja annars vegar þriggja hæða íbúðarhús allt að 200 m2 að grunnfleti og hins vegar vinnuaðstöðuhús allt að 70 m2. Á lóðunum Hellislandi 36A og 36B verður heimilt að byggja einnar hæðar hús með allt að 150 m2 að grunnfleti. Kvöð er um akstur í gegnum lóðina Hellisland 36A og að lóðinni Hellisland 36B.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Eftirfarandi er lagt til:
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.