Ari Björn Thorarensen, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Axel Sigurðsson, Á-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, taka til máls.
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, leggur til að málinu verði frestað.
Fundarhlé er tekið kl. 16:49.
Fundi fram haldið kl. 16:53.
Ari Björn Thorarensen, D-lista, tekur til máls og leggur til að málinu verði frestað til næsta fundar.
Tillaga um að fresta málinu er borin undir atkvæði og er samþykkt samhljóða.
Axel Sigurðsson, Á-lista, gerði grein fyrir atkvæði sínu.