Fyrirspurn
Tillaga frá 41. fundi skipulagsnefndar, frá 26. febrúar sl. liður 3. Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breytingar I. á ASK 2024.
Mál áður á dagsskrá 40. fundar skipulagsnefndar Árborgar eftir auglýsingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem afgreiðslu máls var frestað. Tillagan var auglýst frá 12.12.2024 - 30.1.2025.
Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúruverndarstofnun, Veðurstofu Íslands og Vegagerðinni.
Engar athugasemdir bárust frá almenningi. Viðbragð við helstu atriðum ábendinga og athugasemda umsagnaraðila eru lögð fyrir skipulagsnefnd til afgreiðslu.
Helstu breytingar sem gerðar eru á gildandi aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 eru eftirfarandi, bæði í greinargerð og á uppdráttum:
1. Miðsvæðið M3 breytist í íbúðarbyggð. Heimilt er að vera með hverfisverslun á lóðum næst hringtorgi Eyravegar og Suðurhóla.
2. Athafnasvæði fyrir utan á. Unnið er að deiliskipulagi athafnasvæðis AT2. Gerðar eru lítilsháttar breytingar á afmörkun afþreyingar- og ferðamannasvæðis AF6 vegna þess og skógræktar- og landgræðslusvæðis SL1.
3. Verslunar- og þjónustusvæðinu VÞ8 og þeim hluta samfélagsþjónustu S5 sem nær til leikskólans Glaðheima er breytt í miðsvæði.
4. Iðnaðarsvæðinu I1 er að hluta til breytt í verslunar- og þjónustusvæði.
5. Sett er inn iðnaðarsvæði I21 og I22 fyrir borholur hitaveitu fyrir utan á. Einnig iðnaðarsvæði I23 fyrir borholur hitaveitu á suðurbakka Ölfusár.
6. Verslunar- og þjónustusvæðinu VÞ11 er breytt í athafnasvæði.
7. Íbúðarbyggðinni ÍB27 er breytt til baka í athafnasvæði (AT5), eins og var í eldra skipulagi.
8. Á hluta af opnu svæði OP1, norðan við Sunnulækjarskóla, er heimilt að útbúa aðstöðu fyrir skátana.
9. Skilmálum fyrir miðsvæðið M5 er breytt og byggingar lækkaðar.
10. Skilmálum fyrir miðsvæðið M6 er breytt og byggingar lækkaðar.
11. Sýslumannstúninu er breytt úr íbúðarbyggð í opið svæði.
12. Syðsta hluta Votmúla 1, Lóustaða 1 og Votmúla 3 er breytt úr landbúnaðarsvæði L2 í L3.
13. Sett er inn nýtt svæði fyrir samfélagsþjónustu í landi Stóra-Hrauns og minnkar landbúnaðarsvæði samsvarandi.
14. Settir eru skilmálar fyrir skuggavarp og vindvist.
15. Endurskoðuð er afmörkun svæða sem vinna á rammahluta aðalskipulags fyrir.
Skipulagsnefnd hefur sett upp í sér skjali, viðbrögð við þeim athugasemdum og ábendingum sem bárust frá umsagnaraðilum og fylgir skjalið með öðrum skipulagsgögnum vegna breytingarinnar.
Breytingartillagan hefur ekki breyst að neinu ráði eftir að hún var auglýst, og telur nefndin ekki ástæðu til að auglýsa að nýju.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir fyrir sitt leyti, viðbrögð við ábendingum og athugasemdum umsagnaraðila, og samþykkir einnig tillöguna í samræmi 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og feli skipulagsfulltrúa að senda skipulagstillöguna til afgreiðslu, og jafnframt að senda umsagnaraðilum viðbrögð við athugasemdum.