Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 49
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 37. fundi skipulagsnefndar, frá 27. nóvember sl. liður 1. Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breytingar I. á ASK 2024. Mál áður á dagsskrá skipulagsnefndar 6. nóvember. Gerð hefur verið smávægileg breyting á greinargerð. Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breytingar I. á ASK 2024. Sveitarfélagið Árborg hefur haft til meðferðar breytingu á Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036. Nokkrar breytingar eru gerðar á aðalskipulaginu, sem snúa einkum að þéttbýlinu á Selfossi, ásamt breytingum á landbúnaðarsvæði og nýju svæði fyrir samfélagsþjónustu í dreifbýli. Um er að ræða eftirtaldar breytingar á greinargerð og uppdráttum: 1. Miðsvæðið M3 breytist í íbúðarbyggð. Heimilt er að vera með hverfisverslun á lóðum næst hringtorgi Eyrarvegar og Suðurhóla. 2. Athafnasvæði fyrir utan á. Unnið er að deiliskipulagi athafnasvæðis AT2. Gerðar eru lítilsháttar breytingar á afmörkun afþreyingar- og ferðamannasvæðis AF6 vegna þess og skógræktar- og landgræðslusvæðis SL1. 3. Verslunar- og þjónustusvæðinu VÞ8 og þeim hluta samfélagsþjónustu S5 sem nær til leikskólans Glaðheima er breytt í miðsvæði. 4. Iðnaðarsvæðinu I1 er að hluta til breytt í verslunar- og þjónustusvæði. 5. Sett er inn iðnaðarsvæði I21 og I22 fyrir borholur hitaveitu fyrir utan á. Einnig iðnaðarsvæði I23 fyrir borholur hitaveitu á suðurbakka Ölfusár. 6. Verslunar- og þjónustusvæðinu VÞ11 er breytt í athafnasvæði. 7. Íbúðarbyggðinni ÍB27 er breytt til baka í athafnasvæði (AT5), eins og var í eldra skipulagi. 8. Á hluta af opnu svæði OP1, norðan við Sunnulækjarskóla, er heimilt að útbúa aðstöðu fyrir skátana. 9. Skilmálum fyrir miðsvæðið M5 er breytt og byggingar lækkaðar. 10. Skilmálum fyrir miðsvæðið M6 er breytt og byggingar lækkaðar. 11. Sýslumannstúninu er breytt úr íbúðarbyggð í opið svæði. 12. Syðsta hluta Votmúla 1, Lóustaða 1 og Votmúla 3 er breytt úr landbúnaðarsvæði L2 í L3. 13. Sett er inn nýtt svæði fyrir samfélagsþjónustu í landi Stóra-Hrauns og minnkar landbúnaðarsvæði samsvarandi. 14. Settir eru skilmálar fyrir skuggavarp og vindvist. 15. Endurskoðuð er afmörkun svæða sem vinna á rammahluta aðalskipulags fyrir. Að öðru leyti en því sem hér er greint frá gilda skilmálar eldra aðalskipulags, með síðari breytingum. Lýsing á verkefninu hefur verið kynnt/auglýst í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 28. febrúar til 26. mars 2024. Óskað var eftir umsögnum umsagnaraðila. Tillagan hefur verið kynnt í samræmi við 2. mgr. 30.gr. skipulagslaga með auglýsingum í blöðum, auk þess að vera aðgengileg á heimasíðu Árborgar og skipulagsgátt.is. Kynningartími tillögu var frá 19. júní til 10. júlí 2024. Á fundi bæjarstjórnar Árborgar þann 21. ágúst 2024 var tillagan samþykkt til auglýsingar skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og til athugunar hjá Skipulagsstofnun í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga. Breytingin var send Skipulagsstofnun til athugunar með bréfi dags. 22. ágúst 2024, þar sem óskað er eftir heimild til auglýsingar. Athugun Skipulagsstofnunar barst skipulagsfulltrúa Árborgar með bréfi dags. 19.9.2024, þar sem nokkrar athugasemdir eru gerðar við greinargerð og stafræn gögn. Óskaði stofnunin eftir viðbrögðum við athugasemdum áður en tillagan yrði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga. Athugasemdir Skipulagsstofnunar innan greinargerðar snúa að skipulagsákvæðum vegna hámarksfjölda íbúða á landnotkunarreitum og áætlað heildarbyggingarmagn þar sem áformuð uppbygging er. Bent er á að samræma þurfi upplýsingar um áætlaðan heildarfjölda íbúða og óbyggðra íbúða fyrir ÍB7, fella þarf út ákvæði fyrir VÞ11 og að lokum vísa í nýju Landsskipulagsstefnuna 2024-2038. Athugasemdir vegna stafrænna gagna snúa að því að samræma þurfi upplýsingar stafrænna gagna um stærð andnotkunarreita við það sem kemur fram í greinargerð og taka fram heildarfjölda heimilla íbúða en ekki fjölda óbyggðra íbúða. Einnig þarf að taka fram heildarbyggingarmagn og setja á stærð landnotkunarreita fram í hekturum (ha) með einum aukastaf. Bætt hefur verið í greinargerð Aðalskipulags Árborgar 2020-2036, frá því að athugun skipulagsstofnunar barst. Bætt var við umfjöllun um vatnaáætlun og vatnshlot. Í umhverfismatsskýrslu var bætt við mati á áhrifum á vatn og gróður og dýralíf. Unnið er að deiliskipulagi svæðis fyrir samfélagsþjónustu á Stóra-Hrauni og stækkar það svæði úr um 69 ha í um 114 ha vegna nákvæmari útfærslu. Settir eru ýtarlegri skilmálar fyrir uppbyggingu og að forðast skuli að raska stærra landi en nauðsyn krefur.
Viðbrögð skipulagsnefndar við athugun skipulagsstofnunar dags. 19.9.2024: Um athugasemdir greinargerðar: Í gildandi aðalskipulagi er ekki fjallað um hámarksfjölda íbúða heldur aðeins mögulegan fjölda nýrra íbúða. Það verði einnig gert í aðalskipulagsbreytingunni. Áætlaður fjöldi nýrra íbúða á ÍB7 verður leiðréttur. Ákvæði fyrir verslunar- og þjónustusvæðið VÞ11 verða felld út og verður þar vísað í nýja Landskipulagsstefnu. Um athugasemdir stafrænna gagna: Ekki verður tekið fram heildarbyggingarmagn. Ekki sé þörf á breytingu á samræmingu upplýsinga um stærð landnotkunarreita, en stærð þeirra er sú sama og í stafrænum gögnum og í greinargerð, einnig fyrir I1 og AF6. Ekki er talin þörf á breytingu vegna stærð landnotkunarreita í hekturum með einum aukastaf, þar sem það er nú þegar sett fram á þann hátt. Í eigindatöflu dettur út aukastafur ef hann er 0.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti þær breytingar sem fram hafa komið á tillögunni og einnig viðbrögð við athugun Skipulagsstofnunar, og mælist til við bæjarstjórn Árborgar að samþykkja ofangreindar breytingar og viðbrögð við athugun Skipulagsstofnunar á breyttu Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 til auglýsingar, í samræmi við 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista og Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista.

Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, leggur til að málinu verði frestað og aðalskipulagsbreytingin verði kynnt á fundi með bæjarfulltrúum.

Tillaga Sigurjóns VÍdalíns Guðmundssonar borin undir atkvæði, tillagan felld með 6 atkvæðum, með 1 atkvæði Á-lista og 5 atkvæðum D-lista á móti 2 atkvæðum S-lista, 2 atkvæðum B-lista og 1 atkvæði Fjólu St. Kristinsdóttur, D-lista.

Viðbrögð bæjarstjórnar Árborgar við athugun skipulagsstofnunar dags. 19.9.2024:
Um athugasemdir greinargerðar:
Í gildandi aðalskipulagi er ekki fjallað um hámarksfjölda íbúða heldur aðeins mögulegan fjölda nýrra íbúða. Það verði einnig gert í aðalskipulagsbreytingunni. Áætlaður fjöldi nýrra íbúða á ÍB7 verður leiðréttur. Ákvæði fyrir verslunar- og þjónustusvæðið VÞ11 verða felld út og verður þar vísað í nýja Landskipulagsstefnu.
Um athugasemdir stafrænna gagna:
Ekki verður tekið fram heildarbyggingarmagn. Ekki sé þörf á breytingu á samræmingu upplýsinga um stærð landnotkunarreita, en stærð þeirra er sú sama og í stafrænum gögnum og í greinargerð, einnig fyrir I1 og AF6. Ekki er talin þörf á breytingu vegna stærð landnotkunarreita í hekturum með einum aukastaf, þar sem það er nú þegar sett fram á þann hátt. Í eigindatöflu dettur út aukastafur ef hann er 0.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir þær breytingar sem fram hafa komið á tillögunni og einnig viðbrögð við athugun Skipulagsstofnunar á breyttu Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 til auglýsingar, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan samþykkt með 6 atkvæðum, 1 atkvæði Á-lista og 5 atkvæðum D-lista á móti 1 atkvæði Sigurjóns Vídalín Guðmundssonar, S-lista. Bæjarfulltrúar B-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista sátu hjá við afgreiðslu.