Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 41. fundi skipulagsnefndar frá 26. febrúar, liður 2. Miðtún 17 - Deiliskipulagsbreyting.
Mál áður á dagsskrá 40. fundar skipulagsnefndar Árborgar 12.2.2025, þar sem afgreiðslu máls var frestað. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Miðtún 17 er hér með lögð fram til skipulagsnefndar. Lóðinni Miðtúni 17a er skipt upp í tvær lóðir, sem verða Miðtún 17b og 17c. Á lóðunum verður heimilt að byggja íbúðir, annað hvort einbýlishús eða parhús. Aðkoma að lóðum frá Miðtúni verður að sunnanverðu og norðaustanverðu.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingartillögu í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. sömu laga, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna skv. 43. gr. skipulagslaga og til auglýsingar í samræmi við 41. gr. sömu laga.
Svar

Eftirfarandi er lagt til:
Bæjarstjórn samþykkir breytingartillöguna í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa breytingartillöguna skv. 41. gr. sömu laga.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.

800 Selfoss
Landnúmer: 162542 → skrá.is
Hnitnúmer: 10061015