Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins, vegna Sæbrautar (USK2019100037)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 43
14. ágúst, 2019
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
Fyrirspurn
Áður óséð ófremdar ástand hefur ríkt stóran part dags síðustu mánuði  á Sæbraut í austur, allt frá Hörpu að Höfða vegna framkvæmda við gatnamót Sæbrautar/Snorrabrautar. Undirritaður hefur á liðnum vikum fylgst með framgangi framkvæmda og getur því staðfest að í rúman mánuð hið minnsta hefur þrenging Sæbrautar í eina rein vegna þessa, verið algjörlega óþörf. Hverfisgata og þvergötur hafa fyrir vikið verið yfirfylltar svo afleiðinga gætir víða. 1.    Hvernig má það vera að eitt vörubretti valdi lokun Sæbrautar                 niður í eina rein svo vikum skiptir? 2.    Hvaða tímarammi var settur fyrir verkið? 3.    Hvaða tímarammi var settur fyrir heimildir lokunar reina og þar með ófremdar ástands? 4.    Hvenær lýkur þessu verki?
Svar

Undirritaður er ekki einn um áhyggjur af slíku verklagi og hér hefur verið beitt og leggur þessa fyrispurn fram fyrir hönd fjölda borgarbúa sem til undirrritaðs hafa leitað vegna málsins.Vísað til Umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds til umsagnar.