Sægarðar 1 og 3, breyting á deiliskipulagi
Sægarðar 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 106
2. júní, 2021
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Faxaflóahafna sf. dags. 5. október 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Sundahafnar norðan Vatnagarða vegna lóðanna nr. 1 og 3 við Sægarða. Í breytingunni felst að færa lóðarmörk Sægarða 1 og 3 til suðausturs, stækka lóð Sægarða 3, stækka byggingarreit, hækka hámarkshæð byggingar á lóð Sægarða 1 og færa lagnaleið Veitna, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 2. október 2020. Tillagan var auglýst frá 29. janúar 2021 til og með 15. mars 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Gylfi Gunnarsson og Guðmundur R. Sigtryggsson dags. 12. mars 2021. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. maí 2021.
Svar

Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.

Gestir
Sólveig Sigurðardóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.
Komur og brottfarir
  • - Kl. 11:05 víkur Dóra Björt Guðjónsdóttir af fundi.
  • - Kl. 11:05 tekur Valgerður Árnadóttir sæti á fundinum.
104 Reykjavík
Landnúmer: 103877 → skrá.is
Hnitnúmer: 10083851