Teigahverfi, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 59
8. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga skrifstofu framkvæmda og viðhalds varðandi breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis, dagsett 06.01.2020. Í breytingunni felst að hluti af núverandi gangstétt samsíða Sigtúni verði breytt í grenndarstöð og að núverandi gangstétt verði færð fyrir sunnan við hana, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta ehf. dags. 24. september 2019. Gert ráð fyrir upplýsingaskilti varðandi grenndarstöðina verði við stöðina.  Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Gestir
Björn Ingi Edvardsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.