Breiðholt 1, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 59
8. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga skrifstofu framkvæmda og viðhalds varðandi breytingu á deiliskipulagi Breiðholts 1, dagsett 06.01.2020. Í breytingunni felst að færa núverandi grenndarstöð sem er á bílastæði samsíða Arnarbakka á núverandi snúningshaus við Leirubakka, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta ehf. dags. 24. september 2019. Gert ráð fyrir að framlengja gangstétt við núverandi bílastæði að grenndarstöðinni og staðsetja upplýsingaskilti. Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Gestir
Björn Ingi Edvardsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.