Skólavörðuholt, breyting á deiliskipulagi
Skólavörðuholt (01.19)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 59
8. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga skrifstofu framkvæmda og viðhalds um breytingu á deiliskipulagi Skólavörðuholts. Í breytingunni felst að fjögur bílastæði við austurenda Hallgrímskirkju verði breytt í grenndarstöð, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta ehf. dags. 24. september 2019. Gert ráð fyrir upplýsingaskilti varðandi grenndarstöðina verði við Eiríksgötu. Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Gestir
Björn Ingi Edvardsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
101 Reykjavík
Landnúmer: 102541 → skrá.is
Hnitnúmer: 10122404