Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 59
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Plúsarkitekta ehf. dags. 11. desember 2019 ásamt skipulagslýsingu dags. 9. desember 2019 vegna gerð nýs deiliskipulags fyrir Nesvík á Kjalarnesi sem felst í uppbyggingu allt að 100 herbergja hótels auk 12 stakstæðra húsa sem leigð verða út sem gistirými og þjónustuð af hótelinu. Einnig er lögð fram skýrsla Fornleifastofnunar Íslands dags. 2019. Samþykkt er að kynna lýsingu að deiliskipulagi í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Borgarsögusafni Reykjavíkur, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun, Umhverfisstofnun, Veðurstofu Íslands, Vegagerð, íbúaráði og einnig kynna hana fyrir almenningi.
Svar

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins bókar: 

Gestir
Björn Ingi Edvardsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.