Rauðagerði 27, breyting á deiliskipulagi
Rauðagerði 27 (01.821.2)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 42
3. júlí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Ólafs Óskars Axelssonar f.h. Félags íslenskra hljómlistarm. dags. 24. janúar 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 27 við Rauðagerði. Í breytingunni felst að gera nýjan byggingarreit fyrir tvær færanlegar kennslustofur norðaustanmegin við tónleikasal, við lóðarmörk, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 24. janúar 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 9. ágúst 2018 til og með 6. september 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Jóhanna Guðmundsdóttir og Helgi Helgason dags. 4. september 2018. Einnig lögð fram umsögn skiplagsfulltrúa dags. 27. júní 2019. Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. júní 2019. Vísað til borgarráðs
Gestir
Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
108 Reykjavík
Landnúmer: 108305 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025163