Rauðagerði við Miklubraut, breyting á deiliskipulagi
Rauðagerði (01.82)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 42
3. júlí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 22. júní 2018 varðandi breytingu á mörkum deiliskipulags vegna nýrra lóðarmarka Tónlistarskóla FHÍ að Rauðagerði 27 samkv. uppdrætti Landmótunar dags. 19. júní 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 9. ágúst 2018 til og með 6. september 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Jóhanna Guðmundsdóttir og Helgi Helgason dags. 4. september 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. september 2018 og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. júní 2019. Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. júní 2019. Vísað til borgarráðs
Gestir
Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.