Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040, breytt vaxtamörk á Álfsnesi - breytinga á svæðisskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 67
1. apríl, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu dags. 30. desember 2019 vegna lokaafgreiðslu á tillögu dags. 29. nóvember 2019 að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2040, sem felst í að vaxtamörk á Álfsnesi eru færð út. Einnig er lögð fram umhverfisskýrsla Alta síðast uppfært 1. apríl 2020 Einnig eru lagðar fram innkomnar athugasemdir og viðbrögð svæðisskipulagsnefndar við innkomnum athugasemdum dags. 29. nóvember 2019.  Svæðisskipulagsbreyting ásamt umhverfisskýrslu til samþykktar að lokinni auglýsingu, skv. 25. gr. 2. mgr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006, sbr. erindi svæðisskipulagsnefndar.  Vísað til borgarráðs.
Svar

Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

Bókanir og gagnbókanir
  • Miðflokkur
    Í umsögn Minjastofnunar, vegna auglýstra skipulagstillagna í tengslum við breytingu vaxtamarka á Álfsnesi, segir m.a. staðsetning í Álfsnesvík muni hafa eyðileggjandi og óafturkræf áhrif á þá minjaheild sem bæjarstæði Glóru minjar um kaupstað við Þerneyjarsund og bæjarstæði Sundakots mynda á Álfsnesi vestanverðu. Svo virðist vera að tekið hafi verið tillit til flestra ábendinga stofnunarinnar. Skipulagsstofnun bendir samt á að framkvæmdin muni raska þeirri minjaheild sem finna má á vestanverðu Álfnesi og að áhrif á menningarminjar verði verulega neikvæð, bein og óafturkræf. Sundabraut á að koma austanmegin á Álfsnesi og hefur Minjastofnun ekki setti sig á móti henni því vegurinn og veghelgunin raskar ekki þessari minjaheild. Sama má segja um uppbyggingu SORPU bs. á svæðinu – uppbygging hennar raskar ekki minjaheildinni. Minjastofnun fullyrðir að uppbygging á hafnarmannvirkjum og iðnaði á þessu svæði raski minjaheildinni þrátt fyrir þær breytingar og tilfærslur sem eru hér til umræðu. Á meðan pólitísk áform meirihlutans í Reykjavík um að tefja enn frekar uppbyggingu Sundabrautar liggur fyrir að vinnsla á þessu svæði mun auka til muna umferð vegna þungaflutninga um Mosfellsbæ sem nú þegar eru miklir með tilheyrandi mengun.
  • Samfylkingin, Viðreisn, Píratar
    Reykjavíkurborg, í samstarfi við nágrannasveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, hefur undanfarin ár unnið að því að finna nýjan stað fyrir efnivinnslu og hafnaraðstöðu Björgunar. Það er mikilvægt að áfram verði starfsskilyrði fyrir fyrirtæki eins og Björgun á höfuðborgarsvæðinu, til að þjóna uppbyggingu og mannvirkjagerð. Með því er stuðlað að hagkvæmari þróun byggðar og dregið verulega úr umhverfisáhrifum uppbyggingar. Með staðsetningu slíks fyrirtækis nálægt stærstu byggingarsvæðum landsins, er hægt að spara verulega í akstursvegalengdum og þar með draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna flutning efnisins. Á fyrri stigum vinnunnar var farið í ítarlegt mat á valkostum sem náði til alls höfuðborgarsvæðisins og var niðurstaða þess mats sú að ásættanlegasta staðsetningin væri á Álfsnesi við Þerneyjarsund. Það er hinsvegar ljóst að fyrirhugað athafnasvæði Björgunar er staðsett í grennd við mikilsverðar menningarminjar sem vert er að vernda og halda á lofti á komandi árum. Því er lagt til að hafin verði undirbúningur að því að skilgreina hverfisvernd fyrir þau þrjú minjasvæði sem finna má í grennd við fyrirhugað athafnasvæði Björgunar; Kauphöfn við Þerneyjarsund, Sundakot og Glóra. Ekki er lagt til að hverfisverndarsvæði verði fest í aðalskipulagi nema í tengslum við skipulag Sundabrautar og ákvörðun um endanlega legu brautarinnar þegar frumhönnun framkvæmdar liggur fyrir.