Glerskáli
Lækjargata 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 819
7. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. apríl 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. apríl 2021 þar sem sótt er um leyfi til að steypa nýjan stiga á framhlið og tröppur á bakhlið, innrétta sýningarými á 1. hæð og í risi, koma fyrir pallalyftu í bí slagi sem þjónar kjallara og 1. hæð, innrétta veitingastað í fl. II, teg. A fyrir 45 gesti í kjallara auk þess að byggður er glerskáli yfir fornminjagarð sem tengir Skólabrú 2 og Lækjargötu 12 við umrætt hús á lóð nr. 10 við Lækjargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2021.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 26. mars 2021 og Greinargerð hönnunar dags. 10. mars 2021. Glerskáli, hluti á lóð: 133 ferm., 446,1 rúmm. Gjald kr. 12.100
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Samræmist deiliskipulagi, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2021.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100895 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020760