breyting á deiliskipulagi
Lækjargata 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 819
7. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. apríl 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. apríl 2021 þar sem sótt er um lítils háttar breytingar á 1. hæð til að tengjast glerskála sem byggður verður yfir fornleifagarð og tengir Lækjargötu 10, Skólabrú 2 við hótel á lóð nr. 12 við Lækjargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2021.
Erindi fylgir Greinargerð hönnunar dags. 10. mars 2021 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 8. apríl 2021. Glerskáli, hluti á lóð: 6 ferm., 32,1 rúmm. Gjald kr. 12.100
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Samræmist deiliskipulagi, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2021.