Viðbygging
Síðumúli 24-26
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 755
13. desember, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. nóvember 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. nóvember 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja við suðurhlið og koma þar fyrir búningsklefa fyrir starfsfólk og opna hjólageymslu undir þaki, sem verður lokuð með grindarhliði, við húsið á lóð nr. 24-26 við Síðumúla. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stækkun vegna viðbyggingar, A rými: 66,9 ferm., 198,7 rúmm. Hjólageymsla undir þaki, B rými: 34,6 ferm., 102,8 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Síðumúla 25, 27 og 28.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103831 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001958