breyting á deiliskipulagi
Spítalastígur 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 755
13. desember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. nóvember 2019 var lögð fram umsókn Gests Ólafssonar dags. 20. nóvember 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.184.1 vegna lóðarinnar nr. 10 við Spítalastíg. Breytingin felur í sér skiptingu lóðarinnar, samkvæmt aðaluppdr. Skipulags-, arkitekta- og verkfræðistofunnar ehf. dags. 29. maí 2018 síðast br. 7. nóvember 2019. Einnig er lagt fram samþykki meðlóðarhafa mótt. 20. nóvember 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. desember 2019.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. desember 2019 samþykkt.