breyting á deiliskipulagi
Nýlendugata 29
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 755
13. desember, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. október 2019 var lögð fram umsókn Bjarna Snæbjörnssonar dags. 26. september 2019 um breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 29 við Nýlendugötu. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum hússins úr 5 íbúðum í 7 íbúðir, koma fyrir svölum á suðurhlið hússins og koma fyrir lyftu í húsinu, samkvæmt uppdrætti bj snæ arkitekta dags 26. september 2019 br. 11. desember 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Nýlendugötu 26 og 27, Vesturgötu 42, 44, 44A og 46A og Bakkastíg 2 og 4.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100150 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024246