breyting á deiliskipulagi
Lyngháls 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 738
9. ágúst, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Arkís arkitekta ehf. dags. 15. apríl 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 1 við Lyngháls. Í breytingunni felst að afmarkaður er byggingarreitur ofan á núverandi byggingu og hann verði hluti af heildarbyggingarmagni sem leyfilegt er að byggja á lóðinni og hámarksbyggingarmagn lóðar fari úr 1,0 í 1,1, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 15. apríl 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 20. júní 2019 til og með 18. júlí 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

110 Reykjavík
Landnúmer: 111046 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020078