breyting á deiliskipulagi
Háaleitisbraut 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 738
9. ágúst, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. ágúst 2018 var lögð fram umsókn THG Arkitekta ehf. , mótt. 31. maí 2017, ásamt tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 1 við Háaleitisbraut. Í tillögunni felst að bætt verði við tveimur nýjum byggingarreitum á lóðinni. Á öðrum reitnum næst Kringlumýrarbraut verður heimilt að reisa fimm hæða hús. Hinn byggingarreiturinn er staðsettur á horni Skipholts og Bolholts, en þar verður heimilt að reisa sex hæða íbúðarhús ásamt þjónustu- og verslunarrými á 1. hæð, kvöð er um að efsta hæðin verði inndregin. Bílastæðum verður fjölgað og byggingarmagn og nýtingarhlutfall hækkar sem þessu nemur, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. , dags. 17. desember 2018. Einnig er lagt fram minnisblað Mannvits um hljóðvist dags. 16. nóvember 2017, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 8. maí 2019 og húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 5. júlí 2019. Erindinu var frestað, umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa, og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. júlí 2019.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.