(fsp) staðsetning svínabús
Kjalarnes, Brautarholt
Síðast Vísað til umsagnar deildarstjóra aðalskipulags á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 738
9. ágúst, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er nú lögð fram að nýju umsókn Herdísar Þórðardóttur dags. 16. apríl 2019 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Brautarholts, Kjalarnesi - norðurhluti, vegna lóðarinnar nr. 11 við Brautarholt á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að heimilt er að vera með sambyggða aukaíbúð við íbúðarhúsið á lóðinni, sem ætluð er til útleigu, í stað sambyggðrar tvöfaldrar bílgeymslu, samkvæmt tillögu Einars Ingimarssonar arkitekts dags. 14. apríl 2019. Engar athugasemdir bárust. Einnig lagður fram tölvupóstur Bjarna Pálssonar dags. 7. ágúst 2019.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.