breyting á deiliskipulagi vegna lóðarinnar Bæjarflöt 19
Gylfaflöt
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 605
14. október, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. september 2016 var lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 16. ágúst 2016, um framkvæmdaleyfi sem felst m.a. í því að grafa og fylla í götustæði og gangstéttar, jarðvinnu vegna veitulagna, reisa ljósastólpa o.fl. að Gylfaflöt og Bæjarflöt, samkvæmt teikningum. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju , ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. október 2016.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. október 2016, Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1111/2014 .