Veitingastaður fl.2 - mhl.03
Hverfisgata 94
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 654
20. október, 2017
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. október 2017 var lögð fram fyrirspurn T.ark Arkitekta ehf., mótt. 2. október 2017, ásamt greinargerð, dags. 28. september 2017, um að fella niður kvöð um innskot á 4. hæð hússins á lóð nr. 94-96 við Hverfisgötu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. október 2017.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 20. október 2017.