breyting á deiliskipulagi vegna lóðanna nr. 88A, 90 og 92A við Hverfisgötu
Reitur 1.174.0, Landsbankareitur
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 654
20. október, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. október 2017 var lögð fram umsókn T.ark. Arkitekta ehf., mótt. 5. október 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.0, Landbankareits, vegna lóðanna nr. 88A, 90 og 92A við Hverfisgötu og 67A við Laugaveg. Í breytingunni felst m.a. að sameina lóðirnar að Hverfisgötu 88A og 90, gera kjallara undir Hverfisgötu 88A, fella niður kvöð um flutning hússins að Hverfisgötu 92 og þess í stað heimilt að fjarlægja húsið og byggja nýtt, rífa Laugaveg 67A og endurbyggja í sinni upprunalegu mynd o.fl., samkvæmt uppdr. T.ark. Arkitekta ehf., dags. 10. október 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt tölvupósti T.ark dags. 19. október 2017 þar sem fallið er frá að rífa fasteignina Laugavegur 67a og endurbyggja í sinni upprunalegu mynd.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.