Viðbygging við íbúðarhús og niðurríf bílskúrs
Sjafnargata 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 754
6. desember, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. október 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta viðbyggingu með flötu þaki, með gróðurþekju, sem verður tengd við íbúð í kjallara og 1. hæð á norðvesturhlið húss og rífa niður bílskúr á lóð nr. 3 við Sjafnargötu. Erindi var grenndarkynnt frá 6. nóvember 2019 til og með 4. desember 2019. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagt fram bréf Óskars Jónssonar íbúa að Sjafnargötu 1 dags. 27. nóvember 2019 þar sem ekki er gerð athugasemd við erindið.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. október 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. október 2019. Bréf hönnuðar dags. 3. október 2019 fylgir erindi. Stækkun viðbyggingar eru: 57,1 ferm., 205,6 rúmm. Niðurrif bílskúrs er: 18,2 ferm., 45,5 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.