(fsp) innkeyrsla
Fiskislóð 41
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 754
6. desember, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Guðmundar Odds Víðissonar dags. 22. júlí 2019 ásamt greinargerð dags. 19. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar - Örfirisey vegna lóðarinnar nr. 41 við Fiskislóð. Í breytingunni felst að hækka nýtingarhlutfall í 1,0 ofanjarðar, bygging á lóðinni megi fara í 14 metra að hluta í stað 12 metra, koma fyrir bílgeymslu í kjallara og samræma bílastæðakröfur samkvæmt bíla- og hjólastæðastefnu í Reykjavík, samkvæmt uppdr. DAP ehf. dags. 24. september 2019. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna dags. 9. mars 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 5. nóvember 2019 til og með 3. desember 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

101 Reykjavík
Landnúmer: 209698 → skrá.is
Hnitnúmer: 10108567