Svalir - svalahurð - þakgluggi
Laugateigur 46
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 754
6. desember, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. nóvember 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. nóvember 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, byggja nýjar svalir ásamt svalahurð á vesturkvist og bæta við þakglugga yfir stiga upp á rishæð íbúðar 0101 í húsi á lóð nr. 46 við Laugateig. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2019.
Erindi fylgir lóðauppdráttur 1.365.2 samþykktur af byggingarfulltrúa 1. ágúst 2017, afrit samþykktra aðaluppdrátta dags. 22. febrúar 1990, 22. maí 1986 og 2. október 1946, afrit af ódagsettri umsögn burðarvirkishönnuðar er varða teikningar dags. 18. janúar 2019 og afrit af samþykki meðlóðarhafa og varða teikningar dags. 18. janúar 2019. Gjald kr. 11.200
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2019.

105 Reykjavík
Landnúmer: 104684 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017487