Breyta atvinnuhúsnæði í 3 íbúðir (bakhús)
Grettisgata 50
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 705
16. nóvember, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Huldu Kristínar Guðmundsdóttur dags. 2. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits, reitur 1.190.1, vegna lóðanna nr. 50 og 50B við Grettisgötu. Í breytingunni felst m.a. að allar niðurrifsheimildir eru felldar niður og lóðirnar sameinaðar. Við sameiningu lóða er kvöð um aðgengi að Grettisgötu 50B felld niður, samkvæmt uppdr. Arkitekta Hjördís og Dennis dags. 2. október 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 17. október 2018 til og með 14. nóvember 2018. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

101 Reykjavík
Landnúmer: 102381 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011617