Viðbygging
Kambsvegur 24
Síðast Synjað á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 705
16. nóvember, 2018
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. nóvember 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við bílskúr og innrétta gróðurskála og vinnuherbergi í stækkuðum bílskúr við einbýlishús á lóð nr. 24 við Kambsveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. nóvember 2018.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. september 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. september 2018. Stækkun: 40 ferm., 110,6 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. nóvember 2018.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104275 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024826