breyting á deiliskipulagi
Brúnavegur 13 - Hrafnista
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 705
16. nóvember, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 25. júlí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Laugarás Hrafnistu vegna lóðarinnar nr. 13 við Brúnaveg. Í breytingunni felst að gera nýjan byggingarreit fyrir tæknirými og loftræstisamstæðu vegna fyrirhugaðrar stækkunar á framleiðslueldhúsi Hrafnistu, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 25. júlí 2018. Tillagan var auglýst frá 1. október 2018 til og með 12. nóvember 2018. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar