Steinsteypt einbýlishús, tvær hæðir og ris.
Urðarstígur 16A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 793
16. október, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. september 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. september 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt einbýlishús, tvær hæðir og ris, á lóð nr. 16A við Urðarstíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2020.
Erindi fylgir hæðablað dags. mars 2006 og mæliblað dags. 30. júlí 2014, einnig umsögn Minjastofnunar dags. 27. apríl 2020 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. maí 2020. Stærð: 158,6 ferm., 453,9 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2020 samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102280 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025242