nýtt deiliskipulag
Lækjargata 1
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 793
16. október, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Framkvæmdasýslu ríkisins dags. 14. október 2020 ásamt bréfi dags. 14. október 2020 um nýtt deiliskipulag fyrir lóðina nr. 1 við Lækjargötu, lóð forsætisráðuneytisins og stjórnarráðshússins, vegna áforma um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið fyrir starfsemi forsætisráðuneytisins. Einnig er lögð fram vinningstillaga Kurt og Pí arkitekta frá árinu 2018 og umboð forsætisráðuneytisins dags. 14. október 2020.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.