breyting á deiliskipulagi
Efstaleiti 9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 724
12. apríl, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. apríl 2019 var lögð fram umsókn Arkitekta Laugavegi 164 ehf. dags. 13. mars 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi RÚV-reits vegna lóðarinnar nr. 9 við Efstaleiti. Í breytingunni felst að byggingarreitur verður tvískiptur þ.e. byggingarreitur fyrir 3 hæðir verður á norðanverði lóð og byggingarreitur fyrir 2 hæðir að sunnanverðu, skilmálatafla breytist hvað varðar bílastæði auk þess sem núverandi fyrirkomulag á lóð m.t.t. byggingar, bílastæða og gróðurs er uppfært í samræmi við það sem þegar er byggt, samkvæmt uppdr. Arkitekta Laugavegi 164 ehf. dags. 13. mars 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Efstaleiti 7 og 11.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

103 Reykjavík
Landnúmer: 176595 → skrá.is
Hnitnúmer: 10058296