breyting á deiliskipulagi
Kvistaland 26
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 724
12. apríl, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 11. mars 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Fossvogshverfis, reitur 1.863.2, vegna lóðarinnar nr. 26 við Kvistaland. Í breytingunni felst að byggingarreit er breytt og hann stækkaður, byggingarmagn er aukið, lóðin er skipt upp og afmörkuð er sér lóð fyrir spennistöð og almennur göngustígur sem liggur gegnum lóðina að norðanverðu flyst til norðurs vegna viðbyggingar norðan við núverandi hús, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 11. apríl 2019.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1231/2018.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108800 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014147