Hafnarsvæði, Aðalskipulagsbreyting
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 706
19. maí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 10. mars sl. að hefja vinnu við breytt aðalskipulag hafnarsvæðis og taka saman lýsingu vegna fyrirhugaðrar aðalskipulagsbreytingar í samræmi við 30. og 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Erindinu var vísað til staðfestingar Hafnarstjórnar sem staðfesti á fundi sínum þann 25.3.2020 samþykkt skipulags- og byggingarráðs um vinnu við breytingu á aðalskipulagi hafnarsvæðis. Lögð fram skipulagslýsing dags 15.05.2020.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða skipulagslýsingu samanber 30.gr. skipulagslaga og vísar henni til Hafnarstjórnar og til umsagnar nefnda og ráða bæjarins.