Sléttuhlíð, óveruleg deiliskipulagsbreyting
Sléttuhlíð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 706
19. maí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulags- og byggingarráðs dags. 19.11.2019 var skipulagsfulltrúa falið að kanna afstöðu sumarhúsaeigenda í Sléttuhlíð til þess að heimilað yrði að veita gistiaðstöðu í flokki II á svæðinu. Erindið var kynnt fyrir eigendum og bárust athugasemdir. Á fundi þann 24. mars. sl. var samþykkt að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Sléttuhlíðar þar sem bætt yrði í greinargerðina heimild til að veita gistiaðstöðu í flokki II í frístundabyggðinni í Sléttuhlíð. Fram kom í kynningargögnum að þeir sem hefðu gert athugasemdir á fyrri stigum þyrftu ekki að skila inna aftur sínum ábendingum. Ein athugasemd, samhljóða athugasemd sem barst á fyrri stigum, barst.

Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytingu á deiliskipulaginu samanber umsögn skipulagsfulltrúa og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 123122 → skrá.is
Hnitnúmer: 10034221