Kaldársel, fasteignagjöld, erindi
Kaldársel
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1825
2. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
5. liður úr fundargerð bæjarráðs frá 11.apríl sl. Lögð fram beiðni KFUM og K um niðurfellingu fasteignagjalda.
Með vísan til reglna um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka frá 5. desember 2012, samþykkir bæjarráð erindi frá Sumarbúðum KFUM og K Kaldárseli um niðurfellingu fasteignaskatts af fasteigninni Kaldárselsvegi F2076648 og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Svar

Til máls tekur Ágúst Bjarni Garðarsson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.